Þrír keppendur frá Selfossi tóku þátt í Norðurlandameistaramóti unglinga í ólympískum lyftingum sem fram fór um helgina.
Bjarki Breiðfjörð Björnsson varð Norðurlandameistari í -73 kg flokki 17 ára og yngri. Hann gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í fjórum lyftum af þeim sex sem hann tók. Bjarki endaði í 95 kg í snörun, 106 kg í jafnhendingu og 201 kg í samanlögðu sem er met í U17 ára flokki.
Símon Gestur Ragnarsson varð Norðurlandameistari í -96 kg flokki í flokki 20 ára og yngri. Hann lyfti 118 kg í snörun og 135 kg í jafnhendingu og 253 kg samanlagt. Símon Gestur var einnig valinn ungmenni ársins í flokki U20.
Hin 13 ára gamla Bergrós Björnsdóttir var yngsti keppandi mótsins. Hún vann bronsverðlaun á mótinu en hún keppti í -64 kg flokki 17 ára og yngri. Bergrós setti aldursflokkamet í fjórum lyftum af sex sem hún tók sem endaði með 65 kg í snörun, 75 kg í jafnhendingu og 140 í samanlögðu sem er met í U17 og U15. Bergrós var einnig valin ungmenni ársins í flokki U15.
Keppendur kepptu hver í sínu landi en mótinu var streymt á netinu og dómarar mótsins dæmdu lyfturnar í tölvum, hvaðanæva af á Norðurlöndunum í gegnum streymið.