Íslandsmótið í hópfimleikum fór fram í Versölum í Kópavogi um helgina. Selfoss átti tvö lið í keppninni en það var blandað lið Selfoss og kvennalið Selfoss. Blandaða liðið varð Íslandsmeistari í gólfæfingum.
Keppni í fjölþraut fór fram á föstudaginn og hafnaði kvennaliðið í þriðja sæti sem verður að teljast mjög góður árangur og blandaða liðið hafnaði í 2. sæti á eftir liði Ármanns.
Á laugardeginum voru svo úrslit á áhöldum en þrjú efstu liðin á hverju áhaldi frá föstudeginum komust áfram í úrslit. Blandað lið Selfoss komst áfram á öllum áhöldum þar sem aðeins tvö lið kepptu en kvennalið Selfoss komst verðskuldað áfram á gólfi.
Selfossstelpur voru í 2. sæti fyrir úrslitin en náðu ekki eins góðum árangri seinni daginn og enduðu í 3. sæti á gólfi í úrslitum. Kynslóðaskipti eiga sér stað í kvennaliðinu en veturinn var góð reynsla fyrir næsta keppnistímabil.
Blandaða liðið gerði sér hins vegar lítið fyrir og sigraði í gólfæfingum og hrepptu Íslandsmeistaratitilinn þar. Mjög vel gert af svona ungu liði og framtíðin björt.
Mjög svo góð stemmning var í stúkunni á föstudaginn en Selfyssingar fjölmenntu til að horfa á þetta flotta fimleikafólk. Fimleikadeildin og liðin sem kepptu vilja koma á framfæri þakklæti fyrir frábæran stuðning.
Næsta mót er Minningarmótið sem og HSK mótið í eldri flokki en það verður keyrt samhliða í íþróttahúsi Vallaskóla sunnudaginn 5. maí. Síðan er mjög fjölmennt FSÍ mót á Selfossi helgina 10.-12.maí en það er Vormót Fimleikasambands Íslands.