Blandað lið Selfoss með gull á GK mótinu

Mixlið Selfoss. Ljósmynd/Selfoss

Blandað lið Selfoss sigraði í 1. flokki á GK mótinu í hópfimleikum sem haldið var í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfoss síðastliðinn laugardag.

Tvö lið kepptu í 1. flokki mix og bar Selfoss sigur úr býtum með 40,250 stig en Stjarnan varð í 2. sæti með 38,200 stig.

Mótið á laugardag var fyrra úrtökumótið fyrir Norðurlandamót unglinga sem fram fer í Danmörku 18. apríl næstkomandi. Tvö mót telja til stiga og fer seinna mótið fram helgina 6.-8. mars. Ísland mun senda tvö stigahæstu liðin í báðum 1. flokkunum á Norðurlandamótið.

Í 1.flokki stúlkna keppast fimm lið um farmiðana tvo á Norðurlandamótið. Lið Gerplu kom sá og sigraði á laugardag með 53,900 stig. Lið Stjörnunnar hafnaði í öðru sæti með 48,700  og Fjölnir í þriðja sæti með 48,500 stig. Lið Selfoss hafnaði í fjórða sæti.

Einnig var keppt í meistaraflokki á GK mótinu en Selfoss teflir ekki fram liði í meistaraflokki. Stjarnan sigraði þann flokk með 57,000 stig.

Mótið heppnaðist vel, stúkan var þétt setin og stemningin gífurleg.

Fyrri greinÁslaug Dóra bar fyrirliðabandið og skoraði
Næsta greinRangæingar sýna verkefni úr Vesalingunum