Blossa boðið í heimsókn á Hvolsvöll

Það var mikið um að vera í síðustu viku í Hvolsskóla en börn og fullorðnir skemmtu sér þá vel á þemadögum. Þeim lauk síðan með Vorhátíð Hvolsskóla og mætti Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 í heimsókn ásamt Kristni Þórarinssyni sundmanni úr Fjölni.

Þemadagarnir tengdust að miklu leyti Smáþjóðaleikunum í ár. Í tengslum við þemadagana voru unnin allskonar verkefni sem krakkarnir höfðu greinilega lagt mikilla vinnu í en þar á meðal var eftirlíking af Blossa úr pappamassa.

Á hátíðinni afhenti Blossi Birnu skólastjóra bókagjöf, lestrarbókina Hærra, hraðar, sterkar og íþróttabókina, ÍSÍ-Saga og samfélag í 100 ár.

Blossi vakti mikla athygli, sérstaklega hjá yngri nemendum, og fengu margir að taka af sér mynd með lukkudýrinu. Vel var mætt á hátíðina en um 400 manns voru í salnum.

Kristinn ræddi við elstu nemendur skólans um hvað þarf til að ná árangri í íþróttum og námi og fékk fjölda spurninga frá krökkunum meðal annars hvert hann hefur ferðast og hvað hann borði mikið á dag.

Fyrri greinSigurbjörn Árni setti Íslandsmet
Næsta greinSandur ógnar gróðri á Óseyrartanga