Í ljósi aðstæðna og til að sýna samfélagslega ábyrgð hefur stjórn frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss ákveðið að fresta Brúarhlaupi Selfoss, sem átti að fara fram 8. ágúst næstkomandi.
Í tilkynningu frá frjálsíþróttadeildinni segir að skoðað verður á næstu dögum hvort mögulegt verður að halda hlaupið í lok ágúst eða byrjun september, eftir því hvernig mál þróast.