Sindri og Ægir mættust á gervigrasinu á Selfossi í hádegisleik dagsins í B-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu.
Kristinn Snjólfsson kom Sindra yfir um miðjan fyrri hálfleikinn og staðan var 1-0 í leikhléi. Það var hart barist í seinni hálfleiknum og bæði lið áttu álitlegar sóknir en það var ekki fyrr en á 89. mínútu að Brynjólfi Þór Eyþórssyni tókst að jafna metin fyrir Ægi. Lokatölur urðu 1-1.
Ægir er í 2. sæti riðilsins með 7 stig en Sindri í 4. sæti með 4 stig.