Dagbjartur Kristjánsson, hlaupari, var kjörinn íþróttamaður Hamars fyrir árið 2016 á aðalfundi félagsins á dögunum. Dagbjartur var tilnefndur af skokkhópi Hamars en hann hefur hlaupið með hópnum undanfarið ár.
Dagbjartur hefur náð afar góðum árangri í lengri hlaupum og á vafalaust mikið inni. Hann stundaði sund af kappi hefur nú hafið æfingar með frjálsíþróttadeild ÍR.
Eftirtaldir voru kosnir íþróttamenn sinnar deildar:
Badmintondeild: Hrund Guðmundsdóttir
Blakdeild: Hilmar Sigurjónsson
Fimleikadeild: Erla Lind Guðmundsdóttir
Knattspyrnudeild: Tómas Aron Tómasson
Körfuknattleiksdeild: Snorri Þorvaldsson
Sunddeild: Guðjón Ernst Dagbjartsson
Hlaupari ársins: Dagbjartur Kristjánsson