Dagur í 9. sæti á NM

Dagur Fannar Einarsson, Umf. Selfoss, varð í 9. sæti í tugþraut í flokki 16-17 ára á Norðurlandameistaramótinu í fjölþrautum sem fram fór í Svíþjóð um helgina.

Dagur Fannar átti góðan fyrri dag en á seinni degi varð hann fyrir því óláni að fella byrjunarhæð i stangarstökki og missti þar af dýrmætum stigum.  Dagur Fannar varð í 9. sæti í þrautinni með 5.966 stig.

Keppendur í tugþrautinni í flokki 16-17 ára voru 14 talsins og náði Dagur  Fannar bestum árangri þegar hann sigraði 1.500 m hlaup. Í 400 m hlaupi kom hann fjórði í mark og hann varð í 5. sæti í langstökki, hástökki, 110m grindahlaupi og spjótkasti.

Árangur Dags Fannars í einstökum greinum:  100 m hlaup 11,42 sek, langstökk 6,51 m, kúluvarp 12,14 m, hástökk 1,75 m, 400 m hlaup 52,34 sek, 110 m grindahlaup 16,11 sek, kringlukast 38,01 m, stangarstökk 0, spjótkast 49,02 m og 1.500m hlaup 4:41,74 mín.

 

UPPFÆRT: Upphaflega var sagt að Dagur Fannar hefði bætt eigið héraðsmet í tugþraut á mótinu en meðvindur var yfir mörkum bæði í 100 m hlaupi og langstökki og því er ekki um löglegt héraðsmet að ræða.

Fyrri greinSelfoss aftur á toppinn
Næsta greinHjálparsveitin aðstoðaði við sjúkraflutninga