Dagur Fannar Einarsson, Umf. Selfoss, varð Íslandsmeistari í sjöþraut í flokki 18-19 ára á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum sem haldið var í Reykjavík um síðustu helgi.
Hann sigraði með yfirburðum fékk 4.776 stig og bætti HSK met Bjarka Óskarssonar úr Þór um rúmlega 2000 stig. Þetta er fyrsta sjöþraut Dags Fannars í þessum flokki en hann fór upp um flokk um síðustu áramót.
Dagur Fannar sló eitt HSK met í þrautinni þegar hann hljóp 60 m grindahlaup á 1,0 m hæð grinda á 9,06 sek. Gamla metið var 10,20 sek. Hann var einnig grátlega nálægt því að stökkvar 4,03 m í stangarstökki sem hefði verið HSK met í 18-19 ára flokki en hann varð að láta 3,93 m duga sem er persónuleg bæting. Dagur Fannar bætti sig einnig í kúluvarpi með 6 kg kúlu, kastaði 12,19 m.
Í öðrum greinum hljóp hann 60 m hlaup á 7,23 sek, stökk 6,28 m í langstökki, 1,70 m í hástökki og hljóp svo 1.000 m hlaup á sínum næstbesta tíma, 2:45,69 mín.
Með þessum árangri er Dagur Fannar búinn að tryggja sig langleiðina inn á NM unglinga í þraut næsta sumar. Hann þarf að keppa í kringlu og spjóti í vor með viðunandi árangri en þær greinar eru í tugþraut utanhúss.