Selfoss náði í sín fyrstu stig í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið vann öruggan 4-1 sigur á FH á heimavelli.
„Okkar stúlkur voru afburðagóðar í fyrri hálfleik en áttu aðeins erfitt uppdráttar í seinni hálfleik. Við gáfum hins vegar ekki mörg færi á okkur. Við sýndum fína liðsheild og ég er ótrúlega ánægður með þær. Við fögnum í kvöld og erum ánægð að vera komin með þrjá punkta á töfluna,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, eftir leik.
Selfyssingar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og Eva Lind Elíasdóttir náði að skora tvívegis, á 9. og 37. mínútu. Annars var fátt um færi í leiknum sem einkenndist af baráttu á miðjunni og þar höfðu Selfyssingar yfirhöndina.
Eva Lind lagði svo upp þriðja markið á 70. mínútu fyrir skólasystur sína úr Kansasháskólanum, Sophie Maierhofer. FH minnkaði muninn á 87. mínútu með marki úr aukaspyrnu en Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir potaði inn fjórða marki Selfoss á virkilega snyrtilegan hátt í uppbótartímanum og reyndist það síðasta snerting leiksins.
Selfoss er með 3 stig í 9. sæti deildarinnar. Þrjú önnur lið hafa þrjú stig en Selfoss er með lakasta markahlutfallið.