Einar sópaði að sér verðlaunum

Einar Sverrisson sópaði að sér verðlaunum á lokahófi handknattleiksdeildar Umf. Selfoss sem haldið var í Hvítahúsinu á Selfossi í gærkvöldi.

Einar var bæði valinn besti og efnilegasti leikmaðurinn en auk þess var hann markahæsti leikmaður meistaraflokks og valinn besti sóknarmaðurinn. Einar var annar markahæsti leikmaður 1. deildarinnar í vetur. Ómar Vignir Helgason var valinn varnarmaður ársins og Hörður G. Bjarnarson fékk baráttubikarinn.

Í meistaraflokki kvenna var Tinna Soffía Traustadóttir leikmaður ársins og Þuríður Guðjónsdóttir valin efnilegust. Kristrún Steinþórsdóttir var valin varnarmaður ársins, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst og besti sóknarmaðurinn og Ásdís Björg Ingvarsdóttir fékk baráttubikarinn.

Sigurþór Þórsson Þórsson var valinn félagi ársins en þau verðlaun koma í hlut einstaklings sem hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið.

Í 2. flokki karla var Árni Geir Hilmarsson valinn leikmaður ársins, Jóhann Erlingsson var efnilegastur og Sverrir Pálsson markahæstur.

Lokahófið var hið glæsilegasta og heppnaðist vel. Grímur Hergeirsson, leikmaður gullaldarliðs Selfoss, stýrði samkomunni af stakri snilld en boðið var upp á heimatilbúin og aðkeypt skemmtiatriði, haldið var uppboð og dregið var í happdrætti en í boði voru margir mjög veglegir vinningar.

Hörður G. Bjarnarson, fyrirliði meistaraflokks karla, stefnir á að leggja skóna á hilluna en félagar hans í liðinu voru búnir að ramma inn keppnisbúninginn hans og afhentu þeir Herði hann á lokahófinu.

Eftir hefðbundna dagskrá tók hljómsveitin Papar við og hélt uppi fjörinu langt fram á nótt.


Verðlaunahafar í meistaraflokki kvenna. Ljósmynd/augl.is


Verðlaunahafar í 2. flokki karla. Ljósmynd/augl.is

Fyrri greinDarri og Guðmundur verðlaunaðir
Næsta greinSleginn í höfuðið með öxi