Grétar Ari Guðjónsson hefur skrifað undir eins árs lánssamning við handknattleiksdeild Selfoss. Grétar Ari kemur til Selfoss frá Haukum þar sem hann hefur verið varamarkmaður í meistaraflokki í vetur.
Hann lék þó stórt hlutverk þegar Haukar höfðu betur gegn Aftureldingu í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.
Grétar hefur verið aðalmarkmaður U20 ára landsliðsins í síðustu verkefnum og er klárlega einn efnilegasti markmaður landsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem handknattleiksdeild Selfoss sendi frá sér laust eftir miðnætti í nótt.