Ákveðið hefur verið að fresta leik Selfoss og Gróttu í Olísdeild karla í handbolta sem fram átti að fara í kvöld í Set-höllinni á Selfossi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands en ástæða frestunarinnar er fjöldi COVID-19 smita á Selfossi.
Nýr leikdagur verður fimmtudaginn 25. nóvember kl. 19:30.