Elías Karl Heiðarsson skrifaði nýlega undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild Selfoss. Samningurinn gildir til tveggja ára.
Elías hefur spilað með Selfyssingum upp alla yngri flokka en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki karla fyrir tímabilið í fyrra. Hann átti síðan gott sumar með 2. flokki þar sem hann skoraði tólf mörk. Hann er sóknarmaður og getur leyst fremstu stöður vallarins.
Elías hefur æft af krafti með meistaraflokknum í vetur en liðið mætir Leikni R. í fyrstu umferð Lengjubikarsins þann 6.febrúar á JÁVERK-vellinum.