Selfoss tók á móti FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir kláruðu leikinn í fyrri hálfleik og unnu 1-3 sigur.
„Við ákváðum að fara út í seinni hálfleikinn og sýna að við þyrftum ekki að skammast okkar fyrir frammistöðuna, því að þetta voru hreint út sagt alveg hræðilegar gjafir hjá okkur í fyrri hálfleiknum. Seinni hálfleikurinn var að mörgu leiti glæsilegur. Við erum í mjög vondri stöðu en það er ennþá fullt af stigum til að spila um og við erum ákveðin í því að klára okkar,“ sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Jafnræði var með liðunum framan af en FH-ingar voru mun hættulegri fram á við og þær komust yfir á 25. mínútu með glæsilegu marki. Í kjölfarið riðlaðist leikur Selfyssinga nokkuð og FH nýtti sér þann veikleika til fullnustu og skoraði tvö mörk á næstu tíu mínútum. Staðan var því 0-3 í hálfleik og úrslitin ráðin.
Selfyssingar mættu mun betur stemmdir inn í seinni hálfleikinn og áttu nokkrar álitlegar sóknir. Katrín Ágústsdóttir skaut í þverslána snemma í seinni hálfleik en það var ekki fyrr á á 90. mínútu að heimakonum tókst að koma knettinum í netið. Grace Sklopan skoraði þá beint úr hornspyrnu og reyndist það allra síðasta spyrna leiksins.
Selfoss er áfram í neðsta sæti deildarinnar með 11 stig og nú eru 15 stig eftir í pottinum. Liðið á eftir að leika gegn Þór/KA og Stjörnunni í deildinni og þá tekur við þriggja leikja úrslitakeppni þar sem fjögur neðstu liðin spila innbyrðis.