Selfyssingar eru komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu eftir 0-1 sigur gegn Tindastóli á Sauðárkróki í dag.
Eva Lind Elíasdóttir skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu með góðu skoti úr miðjum vítateignum. Guðrún Þóra Geirsdóttir átti stoðsendinguna eftir góðan undirbúning Sigríðar Theodóru Guðmundsdóttur.
Selfyssingar voru sterkari í seinni hálfleiknum og voru nær því að skora en Emelía Óskarsdóttir átti meðal annars stangarskot eftir snarpa sókn.
Selfyssingar verða því í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin ásamt Stjörnunni, Breiðabliki, Víkingi R, Keflavík og Þrótti R. Á morgun og hinn skýrist svo hvort ÍBV eða Grindavík og FHL eða FH bætist við í pottinn.
Selfoss vann Tindastól fyrir norðan og er komið í 8-liða úrslitin. Hér má sjá allt það helsta úr leiknum: pic.twitter.com/sLDmuR5X4h
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 27, 2023