Eva María Baldursdóttir og Dagur Fannar Einarsson, bæði úr Umf. Selfoss, hafa verið valin í landsliðshóp Íslands í frjálsum íþróttum fyrir árið 2021.
Eva María er valin í stökkgreinar en hún er besti hástökkvari landsins í kvennaflokki og hinn sprettharði Dagur Fannar er valinn í hlaupagreinar.
Árið 2021 verður mjög spennandi hjá frjálsíþróttafólki og dagskráin þétt en stærsta verkefni landsliðsins er án efa Evrópubikarkeppni landsliða. Ísland keppir að þessu sinni í 2. deild eftir glæsilegan sigur liðsins í 3. deild í Skopje 2019.