Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss hefur ráðið Evu Þórisdóttur í stöðu yfirþjálfara deildarinnar frá 1. ágúst næstkomandi.
Eva þekkir vel til fimleika á Selfossi en hún hefur stundað æfingar og þjálfað hjá deildinni auk þess sem hún hefur fjölbreytta dómarareynslu í greininni.
Sú breyting verður hjá deildinni í haust að í stað þriggja yfirþjálfara á mismunandi aldursstigum mun einn hafa yfirumsjón með starfinu.