Eyþór Lárusson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss.
Eyþór er Selfyssingur í húð og hár og lék með meistaraflokki karla frá 2007-2013 og hefur verið þjálfari yngri flokka síðustu 15 ár. Hann er því öllum hnútum kunnugur í deildinni.
Eyþór tekur við stjórnartaumunum af Svavari Vignissyni sem hætti sem þjálfari eftir nýliðið tímabil þar sem kvennaliðið sigraði í Grill66 deildinni og tryggði sér aftur sæti í deild þeirra bestu.
Í tilkynningu frá Selfossi er Svavari þakkað fyrir hans framlag í vetur.
„Deildin er gríðarlega ánægð með að geta ráðið heimamann í starfið og bindur miklar vonir við Eyþór, sem er ungur og metnaðarfullur þjálfari. Það er mjög spennandi vetur í vændum hjá meistaraflokki kvenna,“ segir í tilkynningunni.