Hamar tapaði 2-1 þegar liðið heimsótti Fram í 2. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.
Hamar var meira með boltann í fyrri hálfleik en náðu ekki að koma boltanum í netið og staðan var 0-0 í hálfleik. Hvergerðingar voru fyrri til að skora í seinni hálfleiknum þegar Íris Sverrisdóttir kom boltanum í netið á 66. mínútu eftir hornspyrnu.
Framarar gáfust ekki upp og þær uppskáru vítaspyrnu á 81. mínútu og aðra vítaspyrnu tveimur mínútum síðar. Þær rötuðu báðar í netið og Fram tryggði sér 2-1 sigur.
Hamar er í 8. sæti deildarinnar með 10 stig en Fram er á botninum – einnig með 10 stig en lakara markahlutfall.