Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á hátíðarsýningu deildarinnar á dögunum.
Í umsögn ÍSÍ kemur fram að handbók deildarinnar sé vel unnin og uppfylli vel öll ákvæði fyrirmyndarfélaga þannig að tryggt er að allir rói í sömu átt. Fimleikadeildin var fyrsta deildin innan Ungmennafélags Selfoss til að verða fyrirmyndardeild, árið 2007, en þessi endurnýjun gildir til ársins 2019.
Það var Hafsteinn Pálsson, stjórnarmaður ÍSÍ, sem afhenti Þóru Þórarinsdóttur, formanni fimleikadeildar, fána fyrirmyndarfélagsins.