Selfoss og Fjölnir mættust í fyrsta leik umspilsins í 1. deild karla í handbolta í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn sigruðu 28-25.
Selfyssingar byrjuðu betur í leiknum en Fjölnir náði þriggja marka forskoti þegar leið á fyrri hálfleik og staðan var 16-13 í hálfleik.
Fjölnir náði svo sex marka forskoti þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður, 26-20. Selfoss minnkaði muninn í þrjú mörk, 27-24 þegar þrjár mínútur voru eftir.
Í kjölfarið fengu þeir vínrauðu tækifæri til að minnka muninn niður í tvö mörk en markvörður Fjölnis, sem átti stórleik í kvöld, sá við þeim í tvígang og Fjölnir jók muninn aftur í fjögur mörk, 28-24. Selfyssingar skoruðu svo síðasta mark leiksins.
Hergeir Grímsson var markahæstur Selfyssinga með 7 mörk, Sverrir Pálsson skoraði 6, Teitur Örn Einarsson 4, Guðjón Ágústsson 3, Árni Guðmundsson og Andri Már Sveinsson 2 og Alexander Már Egan 1.
Tvo sigra þarf til þess að komast áfram í keppninni. Liðin mætast næst í Vallaskóla á mánudagskvöld kl. 19:30. Sigri Selfyssingar í þeim leik verður oddaleikur í Grafarvogi miðvikudaginn 15. apríl. Nái Fjölnir hins vegar í sigur á Selfossi eru Selfyssingar komnir í sumarfrí.