Selfyssingar eiga fjórtán fulltrúa í hópum yngri landsliða og hæfileikamótun Handknattleikssambands Íslands, sem æfa og keppa öðru hvoru megin við áramótin. Einnig var Teitur Örn Einarsson valinn í U-21 karla.
U-19 ára landslið karla tekur þátt í Sparkassen Cup í Þýskalandi og þar var Guðjón Baldur Ómarsson valinn í hópinn.
Önnur landslið koma saman til æfinga og má sjá hér að neðan hvaða leikmenn Selfoss hafa verið boðaðir á æfingar.
U-19 kvenna:
Katla María Magnúsdóttir
U-17 karla:
Ísak Gústafsson
Reynir Freyr Sveinsson
Tryggvi Þórisson
Vilhelm Freyr Steindórsson
U-15 karla:
Daníel Þór Reynisson
Einar Gunnar Gunnlaugsson
Hans Jörgen Ólafsson
U-15 kvenna:
Lena Ósk Jónsdóttir
Tinna Traustadóttir
Hæfileikamótun HSÍ:
Guðmundur Steindórsson
Jason Dagur Þórisson
Rúrik Nikolai Bragin