FSu lagði Hauka

Óvænt úrslit urðu á öðrum degi Eden mótsins í körfuknattleik þegar FSu lagði Hauka. Hamar vann Þór örugglega.

Fyrri leikur dagsins var viðureign Hamars og Þórs. Leikurinn náði aldrei að verða spennandi þar sem Hamar var komið með 10 stiga forustu strax um miðjan 1. leikhluta og um miðjan 3. leikhluta var munurinn komin í 25 stig, 62-37. Eftir það var um 20 stiga munur á liðunum allt til loka og endaði leikurinn 87-66.

Stigahæstir hjá Þór voru Emil Karel Einarsson með 18 stig, Þorsteinn Ragnarsson með 14 og Baldur Ragnarsson með 13.

Hjá Hamri skoraði Nerijus Taraškus 14 stig, Darri Hilmarsson 9 og þeir Ragnar Nathanaelsson, Ellert Arnarson og Hilmar Guðjónsson skoruðu allir 8 stig.

Seinni leikur dagsins var Haukar gegn Fsu. Fyrirfram hefði mátt búast við að þetta yrði leikur kattarins að músinni þar sem Haukar leika í efstu deild á meðan 1. deildarlið FSu er samsett af ungum strákum úr drengja og unglingaflokki. Sú varð þó ekki raunin þar sem leikurinn var jafn og spennandi megnið af leiktímanum.

Að loknum fyrsta leikhluta voru Haukar yfir 16-12 og óhætt að segja að varnarleikurinn hafi verið í fyrirrúm. Í öðrum hélt sama baráttan áfram en leikmenn FSu réðu ekkert við Örn Sigurðsson sem virtist ætla að taka yfir stigaskor Haukana. Haukarnir leiddu með tveimur stigum í hálfleik, 33-31.

Seinni hálfleikur hófst eins og sá fyrri endaði, aldrei langt á milli og bæði lið gerðu tilkall til sigurs. Á lokasprettinum duttu Haukar hins vegar í einstaklingsframtakið á meðan FSu liðið var allt á tánum. Á síðustu tveimur og hálfri mínútu leiksins breytti FSu stöðunni úr 65-69 í 65-80 og vann sanngjarnan sigur.

Stigahæstir hjá Haukum voru Örn Sigurðarson með 14 stig og Sveinn Ómar Sveinsson með 12. Stigahæstir hjá FSu voru Valur Orri Valsson með 22 stig, Guðmundur Gunnarsson með 17 og Orri Jónsson sem skoraði 11 stig.

Mótinu lýkur á sunnudag og geta Hamarsmenn þá tryggt sér sigur í mótinu með því að leggja Hauka. Í hinni viðureigninni eigast við Þór og FSu.

Fyrri greinNýr vegur opnar eftir þrjár vikur
Næsta greinEr Njálsbrenna réttlætanleg?