Fyrsti fundur Unglinga-landsmótsnefndar

Í gær kom Unglingalandsmótsnefnd 2018 saman í Þorlákshöfn á sínum fyrsta fundi. Unglingalandsmót 2018 verður haldið í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina, tíu árum eftir að fyrsta Unglingalandsmót var haldið í Þorlákshöfn árið 2008.

Nefndina skipa þau Anna Júlíusdóttir, Sveitarfélaginu Ölfusi, Eyrún Hafþórsdóttir, formaður Umf. Þórs frá Sveitarfélaginu Ölfusi, Guðbjörg Heimisdóttir, Sveitarfélaginu Ölfusi, ritari nefndarinnar, Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi frá Sveitarfélaginu Ölfusi, Gunnsteinn R. Ómarsson, Sveitarfélaginu Ölfusi, formaður nefndarinnar, Guðríður Aadnegard, HSK, formaður HSK, Helgi S. Haraldsson, HSK, Guðmundur Jónasson, HSK og Örn Guðnason, UMFÍ.

Auk þess starfa með nefndinni Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ og framkvæmdastjóri landsmóta UMFÍ.

Fyrri greinSteinunn Fjóla skipuð skrifstofustjóri
Næsta greinSelfoss semur við þrjá nýja leikmenn