Hamar sigraði Fram á útivelli í C-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi.
Leikurinn var markalaus þar til á 58. mínútu að Íris Gunnarsdóttir skoraði eina mark leiksins og tryggði Hamri 1-0 sigur.
Þetta voru fyrstu stig Hamars í keppninni, sem situr nú í 5. sæti síns riðils og á eftir einn leik, gegn botnliði Einherja.