Hamarsmenn hafa misst sterkan leikmann í baráttunni í 1. deild karla í körfubolta en Gabríel Sindri Möller hefur gengið til liðs við úrvalsdeildarlið Skallagríms í Borgarnesi.
Gabríel Sindri er uppalinn Njarðvíkingur og var á láni frá Njarðvík í Hveragerði. Hann hefur staðið sig vel í vetur og átt 10,9 stig, 3 fráköst og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Þessi 19 ára gamli leikstjórnandi spilaði með Gnúpverjum í 1. deild karla á síðustu leiktíð og hefur spilað fjölmarga landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.