Skotfélagið Skyttur hélt BR50 mót síðastliðinn fimmtudag á skotvæðinu á Geitasandi. Mættu sjö keppendur til leiks og þar af fjórir frá Skotgrund Skotíþróttafélagi Snæfellsnes.
Veður var gott en vindur var nokkuð krefjandi eins og keppendur fengu að finna en keppt var í þremur riðlum.
Gestirnir af Snæfellsnesi röðuðu sér í þrjú efstu sætin en leikar fóru þannig að Heiða Lára Guðmundsdóttir sigraði mótið með 224 stig, Eyjólfur Sigurðsson var í öðru sæti með 213 stig og Pétur Már Ólafsson var í þriðja sæti með 190 stig.
Efstur heimamanna var Magnús Ragnarsson í fjórða sæti með 189 stig.