Gnúpverjar Íslandsmeistarar í 3. deild

Gnúpverjar eru Íslandsmeistarar 3. deildar karla í körfubolta í ár. Þeir lögðu lið Laugdæla í úrslitaleik deildarinnar sem fram fór síðastliðinn föstudag. Lokatölur urðu 78-72.

Bæði lið hafa þar með tryggt sér sæti í 2. deild karla að ári.

Laugdælir urðu efstir eftir deildarkeppni vetrarins og Gnúpverjar í 2.-3. sæti. Leikin var fjögurra liða úrslitakeppni sem endaði með úrslitaleik liðanna í íþróttahúsi Kennaraháskólans.

Fyrri greinStærsti kvennakór landsins í Selfosskirkju
Næsta greinFélagsmálaráðherra framsögumaður á aðalfundi