Hamar vann góðan 2-0 sigur á Aftureldingu á Grýluvelli í kvöld í 2. deild karla í knattspyrnu.
Ragnar Valberg Sigurjónsson skoraði bæði mörk Hamars sem fór með sigrinum upp í 4. sæti deildarinnar.
Veðrið setti mark sitt á leikinn en hávaðarok var á vellinum og gæði knattspyrnunnar voru lítil fyrir þær sakir.