Grace Rapp, leikmaður nýkrýndra bikarmeistara Selfoss í knattspyrnu, hefur samið við franska úrvalsdeildarliðið Stade de Reims og mun því ekki leika fleiri leiki með Selfyssingum í sumar.
Rapp gekk til liðs við Selfoss um mitt síðasta tímabil og hefur verið í lykilhlutverki hjá liðinu. Hún hefur spilað alla 19 leiki Selfoss í deild og bikar í sumar og skorað í þeim sjö mörk.
Stade de Reims er nýliði í frönsku úrvalsdeildinni en liðið hefur leikið í neðri deildum undanfarin ár. Félagið var sigursælt á árum áður og varð meðal annars franskur meistari fimm sinnum á árunum 1975-1982.
Einni umferð er lokið í frönsku úrvalsdeildinni en Grace fær verðugt verkefni í sínum fyrsta leik fyrir félagið sem mætir Evrópumeisturum Lyon um næstu helgi.