Guðbrands ræðir við Víkinga

Selfyssingurinn Jón Guðbrandsson á nú í samningaviðræðum við Víking Reykjavík en hann hefur æft með lðinu síðustu vikur.

Jón er uppalinn hjá Selfossi en kom í Víkina 19 ára gamall 2004. Hann lék alls 46 leiki í deild og bikar fyrir félagið á árunum 2004-2008 og skoraði 9 mörk.

Sumarið 2008 sneri Jón aftur á heimaslóðir og spilaði stórt hlutverk í Selfossliðinu þegar það vann sér úrvalsdeildarsæti sumarið 2009. Þá lék hann 18 leiki og skoraði í þeim 5 mörk. Sumarið 2010 skoraði hann svo 4 mörk fyrir Selfoss í 19 leikjum í Pepsi-deildinni en hann tók sér frí frá boltanum í fyrra.

Frétt Fótbolti.net

Fyrri greinFinnur Bjarki til liðs við Sunnlenska
Næsta greinAlúetta, láttu nammið detta…