Fyrstu Suðurlandsmótaröðinni í golfi lauk í gær þegar fjórði og síðasti hringurinn var leikinn á Kiðjabergsvelli.
Fjölmargir tóku þátt í mótaröðinni, en þetta var í fyrsta skipti sem golfklúbbar á Suðurlandi halda mótaröð sem þessa.
Forsvarsmenn mótaraðarinnar segja hana komna til að vera og verða einungis stærri á næstu árum.
Auk Kiðjabergsvallar var leikið á Svarfshólsvelli á Selfossi, Strandavelli á Hellu og Gufudalsvelli í Hveragerði.
Sigurvegarar mótaraðarinnar voru sem hér segir. Það var Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði sem gaf verðlaun.
Drengjaflokkur, 12 ára og yngri:
Pétur Sigurdór Pálsson – GHG
Stúlknaflokkur, 12 ára og yngri:
Vala Guðlaug Jónsdóttir – GOS
Drengjaflokkur, 13-14 ára:
Björn Ásgeirsson – GHG
Stúlknaflokkur, 13-14 ára:
Heiðrún Anna Hlynsdóttir – GOS
1. flokkur:
Guðjón Öfjörð Einarsson – GOS
2. flokkur:
Eikríkur Þór Eikríksson – GOS
3. flokkur:
Guðmundur Þór Hafsteinsson – GOS
4. flokkur:
Svanur Geir Bjarnason – GOS