Knattspyrnukonan efnilega Guðmunda Brynja Óladóttir skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Umf. Selfoss.
Fjölmörg lið í Pepsi deildinni höfðu augastað á Guðmundu eftir gott tímabil hennar á sínu fyrsta ári í efstu deild á nýliðnu sumri.
Guðmunda á að baki fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur meðal annar skorað fimmtán mörk í þrjátíu leikjum fyrir U17 og U19 ára landsliðin. Guðmunda hefur einnig verið reglulega í æfingahópi A-landsliðs kvenna og styttist í að hún komist þar alla leið.
Guðmunda var á dögunum til reynslu hjá norska úrvaldeildarliðinu Arna Björnar, en hún var markahæsti leikmaður Selfoss í sumar með 7 mörk í 17 leikjum og var á lokahófi Selfoss valin besti leikmaðurinn ásamt Katrínu Ýr Friðgeirsdóttur.