Handknattleiksdeild Selfoss hefur gert þriggja ára samning við vinstri skyttuna Guðmund Hólmar Helgason.
Guðmundur hefur spilað með austurríska liðinu West Wien undanfarin tvö ár en spilaði þar á undan með franska liðinu Cesson Rennes. Guðmundur er uppalinn Akureyringur en spilaði einnig með Val áður en hann hélt út í atvinnumennskuna.
Í tilkynningu frá handknattleiksdeildinni segir að það sé ljóst að Guðmundur muni styrkja liðið bæði sóknarlega og varnarlega og er gríðarleg ánægja með þennan liðsauka í herbúðum Selfoss.
Guðmundur er 27 ára gamall og hefur leikið 25 landsleiki. Hann var í landsliðshópnum á Evrópumótinu 2016 og heimsmeistaramótinu 2017.
Hér fyrir neðan er myndband frá Selfyssingum þar sem Guðmundur Hólmar er kynntur til leiks.