Gunnar tekur við kvennaliði Selfoss

(F.v.) Jóhann Bjarnason, Gunnar Borgþórsson og Trausti Rafn Björnsson. Ljósmynd/UMFS

Gunnar Rafn Borgþórsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu. Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Bjarnason og Trausti Rafn Björnsson.

Gunnar tekur við starfinu af Birni Sigurbjörnssyni sem hætti störfum í haust eftir að Selfoss hafði fallið niður um tvær deildir á tveimur árum. Selfoss mun leika í 2. deild kvenna á komandi keppnistímabili.

Þríeykið sem tekur við liðinu þarf vart að kynna fyrir Selfyssingum en þeir eru allir reynsluboltar í faginu og hafa þjálfað hina ýmsu flokka og lið hjá knattspyrnudeild Selfoss. Gunnar hefur áður þjálfað bæði meistaraflokk kvenna, tímabilin 2013-2015, áður en hann tók við karlaliði Selfoss en síðustu ár hefur hann verið yfirþjálfari knattspyrnudeildarinnar. Hann mun áfram starfa sem slíkur samhliða nýja starfinu.

Jóhann Bjarnason hefur hefur undanfarin ár náð eftirtektarverðum árangri með 2. flokk kvenna og Trausti hefur einnig gert góða hluti sem þjálfari í yngri flokkum. Þeir munu báðir halda áfram að sinna þeim störfum.

Fyrri greinHvaða hlekkur ert þú í keðjunni?
Næsta grein„Þetta eru búin að vera frábær 40 ár“