Gunnar Gunnarsson, þjálfari karlaliðs Selfoss í handbolta, var í kvöld útnefndur þjálfari ársins í 1. deildinni á nýliðinni leiktíð.
Kjörinu var lýst á lokahófi Handknattleikssambands Íslands sem nú stendur yfir í Gullhömrum.
Undir stjórn Gunnars urðu Selfyssingar í 3. sæti 1. deildarinnar á hans fyrsta tímabili með liðið. Selfoss fór í umspil um sæti í efstu deild en tapaði þar fyrir Stjörnunni.
Selfyssingar fengu fleiri verðlaun á lokahófinu í kvöld því Ómar Ingi Magnússon var valinn efnilegasti leikmaður 1. deildarinnar. Ómar átti oft á tíðum frábærar innkomur í lið Selfoss í vetur en hann er lykilmaður í U-18 ára landsliði Íslands.