Hamar fær pólskan uppspilara

Damian Sąpór. Ljósmynd/Aðsend

Leikmannahópur nýliða Hamars í úrvalsdeildinni í blaki hefur nú styrkst til muna en félagið hefur gert samning við pólskan uppspilara, Damian Sąpór.

Sąpór er 29 ára  og hefur spilað blak frá unga aldri og varð m.a. meistari ungmenna (U21) árið 2011 með liði sínu Czarni Radom. Hann hefur síðan spilað í 2. deild í Póllandi en blakhefðin þar er afar sterk og er styrkleiki deildarkeppninnar eftir því. Hvergerðingar eru því spenntir fyrir því að sjá hvernig Sąpór spjarar sig í úrvalsdeildinni hér heima á komandi leiktíð.

Úrvalsdeildarráð Hamars vinnur nú hörðum höndum að því að koma lokamynd á leikmannahóp félagsins fyrir næstu leiktíð.  Áður er félagið búið að semja við þá Kristján og Hafstein Valdimarssyni, landsliðsmenn Íslands í blaki, en frekari frétta er að vænta af leikmannamálum liðsins á næstu dögum.

Fyrri greinEr dvergur fyrir austan og álfur fyrir sunnan
Næsta greinSlæmt ferðaveður austan við Skaftafell