Karlalið Hamars í blaki tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn með 3-0 sigri á KA. Hamar vann fyrri leik liðanna í Hveragerði einnig 3-0 og einvígið samtals 2-0.
Fyrsta hrina var jöfn og spennandi og lauk með 25-23 sigri Hamars. Í annarri hrinu var Hamar með yfirhöndina en KA klóraði í bakkann í lokin og staðan var 21-19 þegar Hamar spýtti í lófana og kláraði hrinuna 25-19. Þriðja hrina var allan tímann í höndum Hamars og lauk henni einnig með 25 stigum gegn 19.
Hamar vann því einvígið um Íslandsmeistaratitilinn örugglega og er á sínu fyrsta ári í efstu deild handhafi allra þriggja bikaranna; bikarmeistarar, deildarmeistarar og nú Íslandsmeistarar.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitillinn í blaki sem kemur á Suðurland í 41 ár, eða síðan Ungmennafélag Laugdæla varð Íslandsmeistari árið 1980.