Hamarsmenn unnu góðan sigur á KH í 4. deild karla í knattspyrnu á Grýluvelli í gærkvöldi. Guido Ranchez lokaði leiknum með tveimur mörkum.
Ranchez kom Hamarsmönnum yfir á 25. mínútu og staðan var 1-0 í leikhléi. Leikurinn var í járnum allan seinni hálfleikinn og það var ekki fyrr en á 87. mínútu að Ranchez bætti við öðru marki.
Þetta var þriðji sigur Hamars í röð og liðið er nú komið upp í 5. sætið með 21 stig.
Önnur úrslit í 13. umferð 4. deildarinnar:
Tindastóll 4 – 2 Álftanes
1-0 Arnar Ólafsson (‘4)
2-0 Konráð Freyr Sigurðsson (’38)
3-0 Konráð Freyr Sigurðsson (‘44)
3-1 Magnús Ársælsson (‘47)
3-2 Brynjar Logi Magnússon (‘55)
4-2 Jóhann Daði Gíslason (‘75)