Kvennalið Hamars tapaði 71-60 þegar liðið mætti ÍR í 1. deild kvenna í körfubolta í dag á útivelli.
ÍR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu 37-21 í leikhléi. ÍR gerði endanlega út um leikinn í 3. leikhluta en staðan var 58-34 að honum loknum. Hamar svaraði fyrir sig í síðasta fjórðungnum en það var of seint og munurinn orðinn of mikill.
Hamar spilaði góða vörn í 4. leikhluta og hélt ÍR í 13 stigum á meðan Hamar skoraði 26 stig. Að lokum skildu 11 stig liðin að, 71-60.
Hamar er í botnsæti deildarinnar með 2 stig en ÍR er í 5. sæti með 10 stig.
Tölfræði Hamars: Íris Ásgeirsdóttir 21/8 fráköst, Álfhildur E. Þorsteinsdóttir 10/9 fráköst, Una Bóel Jónsdóttir 9/4 fráköst, Birgit Ósk Snorradóttir 9/5 stolnir, Dagrún Inga Jónsdóttir 4, Gígja Marín Þorsteinsdóttir 3, Perla María Karlsdóttir 3, Margrét Lilja Thorsteinson 1.