Hamar tapaði 2-0 fyrir Hvöt á Blönduósi í 2. deild karla í knattspyrnu í dag.
Rangæingurinn Ari Þór Kristinsson hélt hreinu í marki Hvatar sem kláraði leikinn með tveimur mörkum á fyrstu níu mínútum leiksins.
Hamar er í 6. sæti deildarinnar með 4 stig eftir 4 leiki.