Hamar tapaði heima

Tara Tíbrá Ríkharðsdóttir skoraði fyrir Hamar. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Hamar tók á móti ÍH í neðri hluta 2. deildar kvenna í knattspyrnu á Grýluvelli í dag.

Gestirnir komust yfir á 9. mínútu en Tara Tíbrá Ríkharðsdóttir jafnaði fyrir Hamar í 21. mínútu. ÍH átti síðasta orðið í fyrri hálfleik þegar þær breyttu stöðunni í 1-2 í uppbótartímanum.

Seinni hálfleikurinn var í járnum lengst af en ÍH náði að skora þriðja markið um hann miðjan og lokatölur urðu 1-3.

Staðan í neðri hluta 2. deildar kvenna er þannig að Hamar er í 5. sæti með 4 stig en ÍH er í 4. sæti með 11 stig.

Fyrri greinUppsveitir fengu slæma útreið – Árborg í erfiðri stöðu
Næsta greinÆgir með sigur en Þróttur fór upp