Hamar-Þór er úr leik í bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir stórt tap gegn úrvalsdeildarliði Hauka.
Eins og búast mátti við réðu Haukar lögum og lofum í leiknum. Staðan í hálfleik var 68-19 og lokatölur urðu 117-32.
Gígja Marín Þorsteinsdóttir var stigahæst hjá Hamri-Þór með 13 stig.
Tölfræði Hamars-Þórs: Gígja Marín Þorsteinsdóttir 13/4 fráköst, Gígja Rut Gautadóttir 6/4 fráköst, Hrafnhildur Magnúsdóttir 5/5 fráköst, Hildur Björk Gunnsteinsdóttir 5, Ingibjörg Bára Pálsdóttir 3.