Hamarsmaður kominn í NBA

Hvergerðingar eiga nú orðið fulltrúa í NBA deildinni í körfubolta en Devin Sweetney sem lék með Hamri tímabiið 2010-2011 er nú kominn á mála hjá Denver Nuggets.

Sweetney sem boðið var í æfingabúðir Denver er nú kominn á leikmannalista félagsins. Það er karfan.is sem greinir frá þessu.

Sweetney kom til Hamars í febrúar 2011 og lék sex leiki fyrir félagið þar sem hann var með 27,6 stig, 6,4 fráköst og 1,7 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Sweetney verður nr. 34 í herbúðum Denver en þessi 28 ára gamli leikmaður hefur komið víða við en ásamt því að leika á Íslandi með Hamri hefur hann leikið í Lettlandi, Japan, Kanada, Sviss og Dóminíska lýðveldinu.

Fyrri greinKókoskarrýsúpa með sætum kartöflum
Næsta greinSú ákærða er starfsmaður HSu