Hamarsmenn endurheimtu leikgleðina

Úr leiknum í dag. Ljósmynd/Aðsend

Hamar og Þróttur Fjarðabyggð áttust við í Hveragerði í dag, í seinni leik liðanna um helgina í úrvalsdeild karla í blaki.

Eftir hörku leik í gær, þar sem Hamar þurfti fimm hrinur til að knýja fram sigur, mættu Hamarsmenn vel stemmdir í dag og ætluðu sér greinilega að gera betur en í gær. Leikgleðin skein í gegn hjá leikmönnum Hamars og stemmningin var þeirra megin á vellinum allan leikinn.

Hamarsmenn gerðu einmitt það og höfðu frumkvæðið allan leikinn sem lauk með öruggum 3-0 sigri Hamars, 25-18, 25-16 og 25-19.

Hamarsmenn eru efstir í deildinni með 47 stig og eiga eftir 4 leiki á tímabilinu og eru 5 stigum á undan HK sem eiga 3 leiki eftir.

Fyrri greinHamarsmenn í stuði – Uppsveitir skoruðu fjögur sjálfsmörk
Næsta greinÖruggur sigur hjá KFR