Fjöldi viðurkenninga var veittur á glæsilegu lokahófi handknattleiksdeildar Umf. Selfoss sem fram fór á Hótel Selfossi á laugardag. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Elvar Örn Jónsson voru valin leikmenn ársins.
Þau voru jafnframt markahæstu leikmenn Selfoss á tímabilinu.
Varnarmenn ársins voru Eyvindur Hrannar Gunnarsson og Kristrún Steinþórsdóttir, sóknarmenn ársins voru Teitur Örn Einarsson og Adina Ghidoarca, efnilegust voru Teitur Örn og Elena Elísabet Birgisdóttir og baráttubikarinn hlutu Rúnar Hjálmarsson og Perla Ruth Albertsdóttir.
Félagi ársins var valinn ljósmyndarinn Jóhannes Ásgeir Eiríksson sem hefur mætt með linsuna að vopni á fjölda leikja Selfyssinga undanfarin ár.