Tómas Ellert Tómasson, byggingarverkfræðingur á Selfossi, var fenginn til að hanna nýja stúku við Torfnesvöll á Ísafirði en ráðist verður í byggingu hennar í haust.
Ísfirðingar settu sig í samband við Tómas Ellert í kjölfarið á byggingu stúkunnar við knattspyrnuvöllinn á Selfossi, sem hann hannaði á sínum tíma. „Það tókst ágætlega til við þá hönnun og fékkst fremur hagkvæm lausn við hana, svo þeir óskuðu eftir því við mig að ég hannaði eina slíka við völlinn hjá sér,“ sagði Tómas Ellert í samtali við Sunnlenska.
Stúkan á Ísafirði verður jafnlöng, um 55 metrar en ekki jafn breið stúkunni á Selfossi. „Þetta er nokkuð einfaldari hönnun, því skotíþróttafélagið verður með aðstöðu þar inni og því engir búningsklefar í henni eins og ráðgert er á Selfossi,“ segir hann. Byggð verður stúka og þak yfir hana í einum áfanga að sögn Tómasar Ellerts.
Aðspurður um hvenær ráðgert sé að byggja þakið yfir stúkuna á Selfossi segir Tómas stefnt að útboði á þeirri framkvæmd með haustinu, en vonir eru bundnar við að þak verði komið á stúkuna fyrir setningu Unglingalandsmótsins sem fram fer á Selfossi næsta sumar.