Selfyssingurinn Haukur Þrastarson var valinn besti leikmaður Evrópumeistaramóts 18 ára og yngri í handknattleik sem lauk í Króatíu í dag.
Ísland tapaði 27-32 gegn Svíum í úrslitaleik mótsins í dag.
Haukur skoraði 47 mörk í sex leikjum, þar af tíu í sigri á heimamönnum í Króatíu í undanúrslitunum.
Ísland vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni; 25-20 gegn Póllandi, 29-24 gegn Svíþjóð og 28-24 gegn Slóveníu. Liðið vann svo Þjóðverja í átta liða úrslitum, 23-22, og Króata í undanúrslitunum 30-26.