Kvennalið Selfoss tapaði 1-2 þegar Valur kom í heimsókn á Jáverk-völlinn í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
„Við vorum kannski ekki að fá nógu góð færi en mörk breyta leikjum og það gerðist þegar við skoruðum úr vítinu. Við áttum leikinn í kjölfarið og ég er svekktur með að við skyldum ekki halda þetta út. Við hefðum getað stolið þessu en fengum það í andlitið. Þetta hefði getað lent hvoru megin sem var,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Valur komst yfir á 12. mínútu en eftir markið bökkuðu þær nokkuð og leyfðu Selfyssingum að vera með boltann. Selfossliðið skapaði sér ekki mörg færi í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi var 0-1.
Dagný Brynjarsdóttir fór meidd útaf hjá Selfyssingum í hálfleik og ekki batnaði staðan þegar Hólmfríður Magnúsdóttir haltraði af velli fimm mínútum síðar. Það var því minna bit í sókninni hjá Selfyssingum og reyndar fátt sem benti til þess að þær væru líklegar til að skora fyrr en á 73. mínútu að brotið var á Tiffany McCarty innan vítateigs og vítaspyrna dæmd.
McCarty fór sjálf á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Eftir jöfnunarmarkið efldust Selfyssingar mikið og komust oft í álitlega stöðu en hefðu átt að nýta þær stöður betur. Clara Sigurðardóttir komst næst því að skora á 90. mínútu þegar hún átti hörkuskot framhjá. Boltinn fór ekki inn en þess í stað geystust Valskonur í sókn og skoruðu sigurmarkið um leið og klukkan sló 90 mínútur.
Svekkjandi niðurstaða fyrir Selfyssinga sem eru áfram í 4. sæti deildarinnar með 16 stig og mæta næst KR á útivelli á laugardaginn. Valur er í toppsæti deildarinnar með 34 stig.